Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, deildi skemmtilegu skjáskoti á Facebook síðu sinni fyrr í dag þar sem fram kom samanburður milli Spánar, Svíþjóðar, Danmerkur, og Íslands þegar kemur að COVID-19 faraldrinum.
Við samanburðinn má sjá að sífellt færri kórónaveirusmit koma upp hér á landi og líkt og sóttvarnalæknir greindi frá í síðustu viku má segja að faraldurinn sé á niðurleið. Nú hefur komið í ljós að Ísland sé með þriðju lægstu tölu sýktra af öllum Evrópuþjóðum miðað við höfðatölu.
Aðeins greindust tíu einstaklingar með COVID-19 síðastliðinn sólarhring og er því heildarfjöldi þeirra sem hafa smitast frá upphafi orðinn 1711. „Svo sannarlega það sem við viljum sjá,“ skrifar Pawel við færsluna.
Samanburð Pawel má sjá hér á myndinni en hægt er að bera saman önnur lönd hér: aatishb.com/covidtrends.