Mynd dagsins: Sveinn Andri gerir grín að sínöldrandi Íslendingum

Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni í dag. Sveinn Andri hefur verið nokkuð áberandi undanfarna daga í umræðum um sóttvarnarhótelið.

Hefur hann lýst þeirri skoðun sinni að hann hafi litla samúð með þeim sem þurfa að dvelja í fimm daga á fjögurra stjörnu hóteli á sama tíma og við berjumst við að útrýma kórónuveirunni úr samfélaginu og hindra útbreiðslu hennar.

Mynd dagsins skýrir sig nokkurn veginn sjálf en í henni er gert stólpagrín að Íslendingum nútímans og þeir bornir saman við Íslendinga fyrri tíma sem kölluðu ekki allt ömmu sína.