Mynd dagsins: Svala­ferna frá 1986 fannst grafin niður í Vatnajökulsþjóðgarði

Í Austur­brekkum Skafta­fells­heiðar, rétt áður en komið var að Sjónarnípu, fann land­vörður fyrir stuttu svala­fernu við stíginn. Fernan var að mestu grafin ofan í mold og stóð blá­endinn upp úr. Það þykir kannski ekki merki­legt að tína upp eina, tóma, svala­fernu því eins leitt og það er, þá er ruslatínsla enn hluti af reglu­legum verkum land­varða. Það sem vakti hins vegar at­hygli land­varðarins var út­lit fernunnar. Þetta kemur framá vef Vatna­jökuls­þjóð­garðs.

„Við nánari skoðun kom í ljós að fernan hafði að öllum líkindum til­heyrt ferð­langi sem var á leið um skógar­stíg Austur­brekkna fyrir 36 árum. „Best fyrir“ dag­setning var frá októ­ber 1986. Litirnir á fernunni voru enn nokkuð skýrir og drykkjar­rörið var alveg heilt,“ segir í til­kynningunni

„Í plast­lausum septem­ber árið 2022 má líta á þennan „fund“ sem þarfa á­minningu um á­hrif manna á um­hverfi okkar. Hvað viljum við sjá á göngu­stígum fram­tíðarinnar? Hvað getum við gert núna til að koma í veg fyrir niður­grafnar svala­fernur á skógar­stígum eftir 40 ár?“

„Vatna­jökuls­þjóð­garður leggur aukna á­herslu á minni plast­notkun í starf­semi sinni þennan septem­ber mánuð, m.a. með því að minna á eftir­farandi hug­tök og að­gerðir þeim tengdum. Allir geta gert eitt­hvað – Saman getum við svo margt!“ segir þar enn fremur.

Svalafernan eftir uppgröftinn.