Mynd dagsins: Stór­hættu­legur vöru­bíll í um­ferð á Ís­landi

Stór­hættu­legur vöru­bíll er í um­ferð á Ís­landi. Frá honum er greint í Morgun­blaðinu í dag þar sem haft er eftir að­stoðar­yfir­lög­reglu­þjóni að þarna sé stór­hættu­legur búnaður á ferðinni.

Um er að ræða bíl með stá­loddum á hjól­börðunum sem minna helst á Bond mynd en hjól­barðarnir vöktu at­hygli ljós­myndara Morgun­blaðsins sem smellti af þeim mynd.

Blaðið fjallar ítar­lega um málið í blaði sínu í dag og segist lög­regla ætla að hafa uppi á bílnum auk þess sem blaðið birtir svör Sam­göngu­stofu vegna málsins.