Mynd dagsins: Stofnun múslima á Ís­landi með merki Þjóð­fylkingarinnar?

Mynd dagsins að þessu sinni birti Stefán Óli Jóns­son, fyrr­verandi blaða­maður og nú­verandi að­stoðar­maður þing­flokks Pírata, á Twitter-síðu sinni.

„Pönk dagsins: Stofnun múslima á Ís­landi setti merki Þjóð­fylkingarinnar á mínarettuna sína,“ segir Stefán Óli og birtir tvær myndir, annars vegar af merki Þjóð­fylkingarinnar og hins vegar af mínarettunni þar sem glittir í ís­lenska fánann.

Fram­kvæmdum við mínarettuna lauk á dögunum en um er að ræða 13 metra háan turn við mosku Stofnunar múslima í Skógar­hlíð. Eins og Stefán Óli bendir á eru nokkur líkindi með merki Þjóð­fylkingarinnar og merkinu sem er á mínarettunni.