Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins, tók býsna skemmtilega ljósmynd þegar hann heimsótti gosstöðvarnar í Geldingadölum í fyrrinótt.
Myndin birtist á síðu 2 í Fréttablaðinu í dag og sýnir hún eldgosið í allri sinni dýrð og mann sofandi í svefnpoka með eldtungurnar fyrir framan sig.
Svo virðist sem um erlendan ferðamann hafi verið að ræða en annar einstaklingur í svefnpoka var skammt frá. Myndin var tekin við sólarupprás sem er um fjögur leytið þessa dagana.
Eins og glöggir lesendur sjá er SS-pylsusinnep við hlið mannsins, en eins og allir vita getur verið gott að hafa það við höndina.