Það er óhætt að segja að vorið sé farið að gægjast fram á austanverðu landinu ef marka má spákort Veðurstofu Íslands fyrir daginn.
Eins og meðfylgjandi mynd ber með sér verður sólríkt fyrir austan í dag og verða tveggja stafa hitatölur áberandi víða. Þannig er gert ráð fyrir því að 15 stiga hiti verði í Reyðarfirði klukkan 16 í dag og þar verður að sjálfsögðu heiðskírt. Örlítið svalara verður á Hallormsstað, 12 stiga hiti, og á Egilsstaðaflugvelli verða 13 gráður og heiðskírt.
Ekki þykir útilokað að hitatölur verði hærri en þetta á stöku stað. Hitamet var slegið víða fyrir austan í gær. Þannig mældist 17,9 stiga hiti við Kollaleiru í Reyðarfirði.
Íbúum á austanverðu landinu ætti í það minnsta að vera óhætt að draga fram stuttbuxur, ermalausa boli og jafnvel smá sólarvörn í dag.