Mynd dagsins: Sól­veig hefur grátið – „Ekki þægi­legasti galli í heimi [...] Væri til í laun í sam­ræmi við álag“

Mynd dagsins birti Sól­veig Gylfa­dóttir hjúkrunar­­fræðingur á smit­­sjúk­­dóma­­deild Land­­spítalans en hún er ein af þeim sem stendur í fremstu víg­línu í bar­áttunni við kóróna­veiruna eða CO­VID-19. Frá­sögn Sól­veigar fyrr í vikunni vakti mikla at­hygli en þar kvaðst hún vera stolt að vinna á deildinni á þessum erfiðu tímum. Sól­veig sagði þá:

„Ég elska vinnuna mína ó­­­lýsan­­lega mikið, hún er gefandi, krefjandi, erfið á tímum og viður­­kenni að ég hef stundum grátið, við megum ekki gleyma að við erum mennsk.“

Í dag birtir hún mynd af sér í gallanum og hvernig hún svo lítur út eftir langar og strangar vaktir. Sól­veig segir:

„Ekki þægi­legasti galli í heimi, en er þó örugg. Væri samt alveg til í laun í sam­ræmi við þetta álag sem er bæði and­legt og líkam­legt.“

Hér má skrifa undir og skora á að laun hjúkrunarfræðinga verði hækkuð.