Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram um helgina og mættu yfir tvö þúsund manns á fundinn. Sjálfstæðismenn skemmtu sér vel en mikil spenna var einnig á fundinum þá sérstaklega þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson ákvað að fara í formannsframboð skömmu fyrir fund.
Á landsfundargleðinni á laugardagskvöldinu var fundarmönnum boðið upp á drykk í sprautur þar sem var skrifað í gríni að í sprautunni væri bóluefni fyrir kommúnisma.
„Athugið algengar aukaverkanir eru timburmenn og kapítalískur þankagangur. Í sumum tilvikum kann örvunarskammtur að vera nauðsynlegur,“ stendur meðal annars á sprautunni.
Sóleyju Tómasdóttur, fyrrverandi oddviti VG í borgarstjórn, finnst þetta ekki fyndið.
„Brandari á landsfundargleði Sjálfstæðisflokksins. Sameinandi húmor þegar góða fólkið á Twitter hættir ekki að æsa sig yfir nauðsynlegu aðgerðunum hans Jóns. Vona bara að það hafi verið nóg af humri handa öllum,“ skrifar Sóley.
Fylgjendur Sóleyjar taka undir með henni og skrifar Sverrir Páll meðal annars: „Þetta er svo lélegt grín að þetta lítur frekar út fyrir að vera mynd frá einhverju menntaskóla partýi“
Sitt sýnist hverjum.
Þetta er svo lélegt grín að þetta lítur frekar út fyrir að vera mynd frá einhverju menntaskóla partýi
— Sverrir Páll (@SverrirPall) November 6, 2022