Mynd dagsins: Snillingur í verslun Krónunnar á Bílds­höfða

Mynd dagsins að þessu sinni birtist fyrst í Nostalgíugrúbbunni á Face­book í dag – hóp sem til­einkaður er á­huga­mönnum um alls­konar hluti sem vekja upp for­tíðar­þrá.

Myndin var tekin í verslun Krónunnar á Bílds­höfða og sýnir hún kassa utan af Egils Kristal sem búið er að raða skemmti­legan hátt. Eins og sést mynda kassarnir þá fé­laga Mario og Luigi – sem segja má að hafi verið upp­á­hald margra barna í gamla daga og eru raunar enn þann dag í dag. Þarna hefur einhver snillingurinn verið á ferðinni, svo mikið er víst en myndina má sjá hér að neðan.