Mynd dagsins: Sláandi skopmynd Halldórs í Fréttablaðinu í dag

Skopmyndateiknarinn Halldór Baldursson birti í dag sláandi mynd í Fréttablaðinu.

Umfjöllunarefnið er greinilega mál hælisleitendanna fimmtán sem voru sendir úr landi ,til Grikklands, í vikunni.

Svo virðist sem Halldór sé á þeirri skoðun að fólkið hafi verið sent út í opinn dauðan, en myndin sýnir fjölda greifreita, sem bera ekki legstein heldur vegabréf.

Málið hefur verið á milli tannanna á fólki í vikunni, og hefur fjöldi fólks og félagasamtök gagnrýnt meðfeðrina sem fólkið fékk. Það var handtekið og síðan flutt út og segist ekki hafa fengið að kveðja vini sína eða taka eigur sínar með. Auk þess sem aðalmeðferð í máli þeirra var framundan.