Einstaklingar sem leigðu svokallaðan deilibíl hjá rafskútufyrirtækinu Hopp skildu eftir sig heldur óvenjulegan hlut í bílnum. Hlutur þessi er nefnilega líklega ekki eitthvað sem er mælt með að fólk noti í umferðinni.
Um var að ræða dildó, sem er kynlífsleikfang.
Hopp greindi sjálft frá þessu á samfélagsmiðlinum Twitter. Og birti mynd af tækinu, sem er bleikt.
Tapað/fundið í Hopp Deilibílum just got interesting 👀 pic.twitter.com/QSEJtoOsxJ
— Hopp Reykjavík 🛴🚙💨 (@hoppbike) November 7, 2022
Sá á fund sem finnur.