Mynd dagsins: „Sjoppan er lokuð, en það er biðröð fyrir utan“

Elliði Vignis­son, bæjar­stjóri Ölfuss, birti á­huga­verða mynd á Face­book-síðu sinni í morgun. Sam­kvæmt henni virðist eftir­spurnin eftir ferða­lögum til Ís­lands enn vera um­tals­verð þó að ferða­manna­straumurinn hafi sjaldan verið minni en um þessar mundir.

„Ís­land fetar sig nú hægt og örugg­lega inn í niður­sveiflu í efna­hags­lífinu. Ferða­þjónustan finnur þyngst fyrir þessu. Gleymum samt ekki að margt bendir til þess að þetta á­stand vari ekki lengi og landið rísi jafn­vel hraðar en nú er spáð,“ segir Elliði og bætir við:

„Það er eðli­legt að salan í sjoppunni falli niður á meðan hún er lokuð, eftir­spurnin er hins vegar enn til staðar - meira að segja meiri en oftast áður. Til marks um þetta má td. hafa hversu margir leita að "ferða­lög til Ís­lands" á netinu,“ segir hann og birtir myndina sem sjá má hér að neðan.

Ef eitt­hvað er að marka þessa mynd, sem sýnir fjölda leita á Goog­le með leitar­orðunum „Tra­vel to Iceland“, sést að um það bil jafn margir slá þessum leitar­orðum inn á Goog­le nú og gerðu í upp­hafi árs 2016. Hæst fór þetta hlut­fall árið 2010, eftir gosið í Eyja­fjalla­jökli og svo árið 2017. Á fyrri hluta þessa árs sést býsna skörp dýfa sem skýrist væntan­lega af CO­VID-19 far­aldrinum en svo stórt stökk upp á við nú í haust.