Mynd dagsins: Sjáðu hvað Jói Fel er að gera eftir að bakaríið fór á hausinn

Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, situr ekki auðum höndum þó að bakarískeðja hans hafi verið úrskurðuð gjaldþrota í september síðastliðnum.

Jói hefur verið duglegur að halda sínum tæplega níu þúsund fylgjendum á Instagram upplýstum um daglegt líf sitt.

Eitt af áhugamálum hans er að mála og hefur nýjasta mynd hans, af sjálfum Kára Stefánssyni, vakið mikla athygli. Um er að ræða mynd sem er máluð eftir ljósmynd Valgarðs Gíslasonar, ljósmyndara Fréttablaðsins, sem birtist á forsíðu DV í fyrrasumar.

Mynd Jóa vakti mikla lukku, bæði á Facebook og Instagram, og fékk hann margar fallegar kveðjur.

„Vó!!! Mjög vel gert elsku besti,“ sagði Ellý Ármanns, vinkona Jóa, sem sjálf hefur verið að gera góða hluti í listinni.

Hægt er að skoða verk eftir Jóa á Instagram-síðunni hans

Nýjasta myndin hefur vakið lukku. Er líka komin með nýja instagram síðu joifel_art. Þar er að finna mikið af málverkum eftir mig.

Posted by Joi Fel on Mánudagur, 15. febrúar 2021