Gunnar Dofri Ólafsson, samskiptastjóri hjá Sorpu, birtir útreikninga úr reiknivél bankanna ef tekið er 80% lán til að kaupa 50 milljón króna íbúð.
Hann ímyndar sér samtalið við bankann svona.
„GD: Já góðan dag, ég ætla að fá 80% lán til að kaupa 50 milljón króna íbúð takk
Lánasjomli: Jess, ekkert mál, það gerir sjö hundruð níutíu og eina milljón, átta hundruð tuttugu og átta þúsund, níutíu og eina krónu
GD: Næs, takk“
Hjalti Már Ísleifsson bendir þó réttilega á að þetta segi ekki alla söguna. „Hvað segir þetta samt? M.v. þessar verðbólguforsendur verður verðlag búið að meira en 25 faldast undir lok lánstímans. Núvirði heildarafborgananna er 68.250.000 kr.“
Hvað segir þetta samt? M.v. þessar verðbólguforsendur verður verðlag búið að meira en 25 faldast undir lok lánstímans. Núvirði heildarafborgananna er 68.250.000 kr.
— Hjalti Þór Ísleifsson (@hthisleifsson) March 10, 2023