Mynd dagsins: Halldór gerir grín af sölunni á Ís­lands­banka og á­hyggjum bæjarfulltrúa af glæpum og Borgar­línu

Hall­dór Baldurs­son, skop­mynda­teiknari Frétta­blaðsins, tengir tvær fréttir saman ískop­mynd dagsins í blaðinu.

Þar gerir hann grín af á­hyggjum bæjar­full­trúa í Mos­fells­bæ um að Borgar­línan muni dreifa glæpum betur um höfuð­borgar­svæðið en Sveinn Óskar Sigurðs­son, bæjar­full­trúi og odd­viti Mið­flokksins í Mos­fells­bæ sagði að hættan með til­komu borgar­línu væri að glæpir eiga auð­veldara með að dreifast út í út­hverfin.

Hann tengdi þessi orð saman við söluna á Ís­lands­banka en margir hafa verið uggandi yfir því að per­sónur og leik­endur úr banka­hruninu fengu að kaupa.