Mynd dagsins: Sjáðu eyði­legginguna fyrir austan er bílar fuku saman

Rúður splundruðust og bílar fylltust af grjóti og snjó þegar ó­veðrið reið yfir Austur­land í gær. Vil­hjálmur Vern­harðs­­son, staðar­haldari í Fjalla­­dýrð í Möðru­­dal, var einn þeirra sem að­­stoðaði tugi ferða­manna sem sátu fastir á Austur­landi vegna ó­­veðursins sem reið yfir í gær.Í sam­tali við Frétta­blaðið segir hann að rúm­­lega sjö­tíu manns hafa þurft á að­­stoð að halda og að þau hafi eytt nóttinni í Möðru­­dal.

„Það voru rúm­­lega sjö­tíu manns sem gistu hjá okkur,“ segir Vil­hjálmur. „Þetta er fólk sem við þurftum að hjálpa, það var náttúru­­lega bara von­­laust veður og þetta er fólk sem lenti í því að eigin­­lega allar rúður hjá þeim brotnuðu í veðrinu.“

Flestir bílarnir eru bíla­­leigu­bílar, að sögn Vil­hjálms. „Þetta eru nánast allt bíla­­leigu­bílar og megnið af þessum bílum eru ó­­öku­hæfir, það eru engar rúður eftir í þeim eða neitt,“ segir hann.

Bíla­­leigurnar hafi ekki enn komist með bíla fyrir ferða­­mennina og því sitji flestir þeirra enn fastir í Möðru­­dal. Fólkið hafi þó verið á­­nægt yfir því að þeim hafi verið bjargað úr þessum að­­stæðum. „Þegar það er búið að bjarga fólki úr svona að­­stæðum, þá er það oft glatt og á­­nægt við að komast í húsa­skjól,“ segir Vil­hjálmur.

Rauð veður­við­vörun var í gildi til klukkan níu í gær­­kvöldi og við tók appel­sínu­gul við­vörun. Nú er gul við­vörun í gildi á Austur­landi. Vil­hjálmur segir veðrið í Möðru­­dal vera betra núna en það var í gær. „Það er allt í lagi núna en það er að versna aftur,“ segir hann.

Mynd/Friðrik Árnason
Mynd/Friðrik Árnason
Mynd/Friðrik Árnason