Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann frækinn 2-1 sigur á Rúmeníu í gærkvöldi. Sigurinn þýðir að Ísland spilar hreinan úrslitaleik við Ungverjaland í Búdapest um sæti í lokakeppni Evrópumótsins næsta sumar.
Árangur íslensku landsliðanna – bæði karla og kvenna – hefur verið frábær á undanförnum árum en sumum þykir að aðstaðan á Laugardalsvelli hæfi ekki okkar frábæra landsliðsfólki.
Á Twitter hefur gengið mynd sem tekin var í búningsklefa íslenska landsliðsins, en segja má að aðstæðurnar séu víða betri úti í heimi.
„Klefi hjá liði sem hefur farið á tvö stórmót og vonandi á leiðinni á það þriðja,“ segir Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Grindavíkur og fyrrverandi fréttamaður. Jóhann Óli Eiðsson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, deildi færslunni og tók undir þetta. Hann sagði meðal annars:
„Það er algerlega galið að þetta þyki boðlegt.“
Runólfur Trausti Þórhallsson, blaðamaður á Vísi, segir að vissulega mætti Laugardalsvöllur vera betri á allan hátt. „En ég elska þetta. Eflaust hluti af stemmningunni sem fylgir þessum hóp. Hluti af einkenninu og allt það,“ segir hann meðal annars.
Klefi hjá liði sem hefur farið á tvö stórmót og vonandi á leiðinni á það þriðja. pic.twitter.com/cvLeDynecZ
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) October 8, 2020