Mynd dagsins: Sigurður Ingi á nær­bolnum í við­tali

Segja má að nokkuð fjörugar um­ræður fari nú fram á netinu um klæða­burð Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveitar­stjórnar­ráð­herra, í viðtali í kvöld­fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi.

Sigurður Ingi var þar í við­tali um upp­byggingu hafnar­mann­virkja í Reykja­nes­bæ til að mæta miklu at­vinnu­leysi á Suður­nesjum. Við­talið við Sigurð Inga var tekið í gegnum fjar­fundar­búnað og er skemmst frá því að segja að spari­fötin voru víðs fjarri í um­ræddu við­tali. Sigurður Ingi var heimilislegur og klæddur í hvítan nærbol, eins og flestir karlmenn eiga væntanlega inni í skáp.

„Eina leiðin fyrir ráð­herra að toppa þetta er að mæta ber að ofan í við­tal,“ segir Gunnar Smári Egils­son, stofnandi Sósíal­ista­flokksins, í inn­leggi sem hann setti á Face­book-síðu flokksins. Við inn­leggið setti hann með­fylgjandi skjá­skot af Sigurði Inga.

Sitt sýnist hverjum um þetta og hrósuðu margir Sigurði Inga fyrir að mæta til dyranna eins og hann var klæddur, í orðsins fyllstu merkingu. „Bara heimilis­legur, ekkert má maður. Ekki einu sinni heima hjá sér,“ segir í einni at­huga­semd á meðan annar bætir við að við ættum að þakka fyrir að menn komi í við­töl í tíma og ó­tíma og gefi sér aldrei frí.

„Al­þingis­fólk er, og á að vera, fólk eins og ég og þú. Gagn­rýnum fólk á orðum þeirra, gjörðum og hæfni til starfsins, ekki klæða­burði,“ segir í enn annarri at­huga­semd en Gunnar Smári segist þó ekki hafa verið að kvarta, bara að benda á hið ó­vana­lega.