Mynd dagsins: Sigurður G. ósáttur – Búin að bíða í ár eftir viðgerð og sendir Mílu reikning

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður birti áhugaverða mynd á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Á myndinni má sjá ljósleiðaraþráð sem liggur inn um glugga á húsi Sigurðar á Þingeyri. Hann vandar ekki Mílu kveðjurnar nú þegar til stendur að selja fyrirtækið til sjóðastýringarfélagsins Ardian.

„Svarar París? Vonandi leiðir sala Mílu ekki til þess að senda þurfi beiðni til Parísar til að fá lagaða bráðabirgðaviðgerð á ljósleiðara hjá mér að Brekkugötu 2 Þingeyri. Beiðni um viðgerð mun hafa verið send fyrir ári frá Ísafirði til Reykjavíkur. Ekki virðist enn komin heimild til að ljúka viðgerð.“

Sigurður segir að „sá franski“ sem rætt var við í fjölmiðlum komi þessu vonandi í lag þegar hann fær beiðni frá Mílu.

„Svo ljósleiðarinn liggi ekki ofanjarðar úti frá götuskáp inn um opnanlegt fag og undir rúm og upp í tengibox. Lagaði hann síðast sjálfur eftir að hann hafði verið slitinn rétt við götuskáp. Á eftir að senda Mílu reikning vegna þess og eins fyrir afnot af lóð, glugga og gólfplássi.“