Mynd dagsins: Sigur­borg birtir tölvu­póst sem hún fékk í gær­kvöldi

Þeir sem lifa og hrærast í hringiðu stjórn­mála hér á landi verða oft á tíðum fyrir býsna ó­væginni gagn­rýni, til dæmis á sam­fé­lags­miðlum. Þetta þekkja borgar­full­trúar í Reykja­vík á­gæt­lega enda oft á tíðum mikill hiti í um­ræðum um mál­efni sem varða höfuð­borgina.

Sigur­borg Ósk Haralds­dóttir, borgar­full­trúi Pírata og for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, birti á Twitter-síðu sinni tölvu­póst sem henni barst í gær­kvöldi þar sem hún er meðal annars sögð þrjósk. Veltir hún því fyrir sér hvort það sé góður eða slæmur eigin­leiki.

Í tölvu­póstinum segir orð­rétt:

„Það er oftast rök­þrota fólk, sem svarar ekki í rök­ræðum. Ég hef fylgst með þér í fjöl­miðlum á kjör­tíma­bilinu, og hef komist að því, að þú tekur aldrei ráðum annarra. Eina röddin sem þú hlustar á, er þín eigin rödd. Þrjósk ert þú kona, og líka Dagur Bé.“

Helgu Völu Helga­dóttur, þing­konu Sam­fylkingarinnar, þykir orða­lagið í tölvu­póstinum kunnug­legt. „Heyy er þetta mögu­lega vinur minn sem byrjar á B? Svipað orða­lag, stuttir póstar, geggjaður stuð­pinni.“

Í um­ræðum eru svo skiptar skoðanir um það hvort það sé já­kvætt eða nei­kvætt að vera þrjósk/ur. „Nei­kvætt; ein­örð gæti verið já­kvæða út­gáfan,“ segir einn á meðan annar bætir við: „Í þessu til­felli já­kvætt.“