Mynd dagsins: Sigurbjörg klökk þegar stúlkurnar bönkuðu upp á – Sjáðu miðann sem hún fékk

Valentínusardagurinn var haldinn í gær en eins og flestir vita er dagurinn helgaður ást og vináttu.

Kona að nafni Sigurbjörg deildi fallegri upplifun í íbúahópi Seltirninga á Facebook eftir að tvær ungar stúlkur, 10-12 ára á að giska, bönkuðu upp á heima hjá henni og glöddu hana.

„Seinni partinn í dag hringdi dyrabjallan og fyrir utan stóðu tvær ungar stúlkur ca 10-12 ára. Þær réttu mér þennan fallega miða og sögðust vilja gleðja fólk í tilefni af deginum,“ segir hún.

Sigurbjörg segir að stúlkurnar hafi svo sannarlega staðið við stóru orðin því þær voru búnar að moka frá húsinu og bílnum.

„Þegar ég spurði hvað ég gæti gert á móti svöruðu þær: „Ekkert, vildum bara gleðja.” Ég var svo uppnumin og bara hálf klökk og gleymdi auðvitað að spyrja hvað þær hétu en þær búa hér í Nesbalanum,“ segir Sigurbjörg sem bætir við að lokum: „Stórt TAKK.“