Mynd dagsins: Sérðu eitt­hvað at­huga­vert við þetta bað­her­bergi í Foss­voginum?

Mynd dagsins að þessu sinni sýnir lítið bað­her­bergi í fal­legu húsi í Foss­voginum sem nú er til sölu hjá fast­eigna­sölunni Eigna­miðlun. Bað­her­bergið hefur meðal annars vakið at­hygli á sam­fé­lags­miðlinum Twitter. Myndina má sjá hér neðst.

Um er að ræða endar­að­hús við Gilja­land en á einni myndinni má sjá að búið er að koma fyrir stöðu­mæli við klósett­skálina á gesta­bað­her­bergi hússins. Sannar­lega at­hyglis­verð – en kannski dá­lítið skemmti­leg – stað­setning fyrir stöðu­mæli.

Ekki fylgir sögunni hvort gest­komandi þurfi að borga í stöðu­mælinn áður en þeir setjast á klósettið.

Á­sett verð á húsinu er 109,9 milljónir króna enda á eftir­sóttum stað og auk þess 236 fer­metrar. „Húsið er vel stað­sett í hverfinu, stutt í skóla, leik­skóla og Víkina,“ segir í sölu­lýsingu.