Mynd dagsins: „Sennilega stysta sumar sem sögur fara af“

Mynd dagsins að þessu sinni birtist á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurnesjum.

Íbúar á suðvesturhorni landsins vöknuðu margir við vondan draum í morgun þegar þeir litu út um gluggann. Það var engu líkara en að veturinn væri kominn aftur, nákvæmlega viku etir að sumardagurinn fyrsti gekk í garð. Það var nánast allt á kafi í snjó og þurftu ófáir að skafa og fara sér hægt á sumardekkjunum á leið til vinnu.

Að því tilefni birti Lögreglan á Suðurnesjum meðfylgjandi mynd og sagði við hana:

„Þetta er nú sennilega stysta sumar sem sögur fara af, allir út að skafa bara.“