Klósettpappír er orðinn eins konar táknmynd hömstrunar á tímum COVID-19, þá sérstaklega erlendis þar sem hillur hafa verið tæmdar. Þó það sé enginn skortur á honum hér á landi þá líður mörgum greinilega betur að eiga nóg.
Ríkisstjórnin hefur verið róleg og yfirveguð á þessum víðsjárverðu tímum. Vakti þó athygli í morgun þegar mynd náðist af sendingu í stjórnarráðið þar sem ekki er að sjá á öðru en að verið sé að passa upp á að eiga nóg af klósettpappír.