Aðdáendur einhverra bestu þátta sjónvarpssögunnar, Seinfeld, eru yfir sig hrifnir af listaverki sem finna má í miðborg Reykjavíkur. Á Facebook má finna síðuna Kramer Daily þar sem aðdáendur þessarar kostulegu persónu úr Seinfeld-þáttunum skiptast á myndum og fleiru.
Síðan nýtur töluverðra vinsælda á Facebook og eru áskrifendur hennar hátt í 200 þúsund talsins.
Á færslu sem birtist nýlega mátti sjá mynd af Kramer í öllu sínu veldi utan á húsi í miðborg Reykjavíkur. „Maðurinn er goðsögn,“ segir í einni athugasemd og í annarri segir: „Við elskum þig, sama hvar þú ert.“