Mynd dagsins: „Samfélagið hatar konur“

Aðgerðasinninn Tanja Ísfjörð deilir mynd á Twitter í dag ásamt hugvekju sem hefur vakið mikil viðbrögð. Hún deilir færslu með mynd af karlmanni sem tekin er úr öryggismyndavél á Akureyri, í færslunni segir: „Þessi gengur laus um Akureyri og stelur! Megið láta lögregluna vita ef þið sjáið kvikindið.“

FDrNvCYX0As9qSS.jpg

Þessi færsla var búin að fá nærri því eitt þúsund deilingar. Maðurinn getur þekkst á myndinni, en hann var hvorki dæmdur eða ákærður fyrir nein brot þrátt fyrir að fullyrt væri að hann sé þjófur.

„Þessu deilir sama fólk og gagnrýnir okkur fyrir að skila skömminni. No questions asked,“ segir Tanja. „Það er ekkert mál að dæma menn án dóms og laga fyrir glæpi nema þeir tengist kynbundnu ofbeldi. Þá þarf 17 vitni, myndband, játningu og dóm áður en má opna sig. Samfélagið hatar konur.“

Hún spyr svo:

„Hvar eru öll þau sem öskra „saklaus uns sekt er sönnuð!!!!? Það eru fokking 959 búin að deila þessu án þess að spyrja af þessari spurningu.“