Mynd dagsins að þessu sinni birtist fyrst á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar Þorbjarnar og sýnir björgunarsveitarmann sitja við hlið lögreglumanns í hlíðum Geldingadala.
Myndin hefur vakið talsverða athygli enda gullfalleg mynd sem sýnir þá vinsemd og virðingu sem ríkir á milli þessara mikilvægu viðbragðsaðila. Lögreglumaðurinn breiðir vinstri handlegginn yfir axlir björgunarsveitarmannsins á meðan þeir virða fyrir sér eldgosið á Reykjanesi.
„Það er alveg ljóst að þetta verkefni væri mun erfiðara ef ekki væri fyrir gott samband milli björgunarsveitarmanna og lögregluþjóna,“ segir í færslunni.
Samband okkar og lögreglunnar er einstakt 🥰 Það er alveg ljóst að þetta verkefni væri mun erfiðara ef ekki væri fyrir gott samband milli björgunarsveitarmanna og lögregluþjóna 😊 Lögreglan á Suðurnesjum ❤
Posted by Björgunarsveitin Þorbjörn on Sunnudagur, 28. mars 2021