Tómas Guðbjartsson læknir birti mynd dagsins á Facebook-síðu sinni í dag. Á myndinni má sjá nokkuð rúmgóðar nærbuxur sem finna má á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítalans.
„Við hugsum stórt á hjarta- og lungnaskurðdeildinni, en það voru engar stærðir í XS, S, M, L eða XL þegar naríusendingin úr þvottahúsinu barst í morgun,“ segir Tómas og bætir við að sennilega hafi einhver ruglingur orðið í pöntunarkerfi spítalans og nærbuxurnar óvart verið pantaðar í „Tommum“ en ekki sentimetrum.
„Við höfum hafið útboð á þessum víðáttumikla fatnaði og rennur ágóðinn til tækjakaupa á deildinni. Svona naríur eru tilvaldar fyrir gönguhópa sem ferðast með allt á bakinu og vilja halda þyngd í lágmarki - en samt komast í þurrt og mjúkt á kvöldin.“
Rúmgóðar naríur í Tommum Við hugsum stórt á hjarta- og lungnaskurðdeildinni, en það voru engar stærðir í XS, S, M, L eða...
Posted by Tomas Gudbjartsson on Miðvikudagur, 3. júní 2020