Mynd dagsins: Rottur á leið til Akureyrar

Um fátt hefur verið meira rætt undanfarna daga en yfirvofandi kattabann á Akureyri. Frá árinu 2025 verður lausaganga katta bönnuð á Akureyri og sitt sýnist hverjum um það.

Á meðan sumir fagna ákvörðuninni eru aðrir sem gagnrýna bannið harðlega og segja að vonlaust verði að halda köttum innandyra allt árið um kring.

Veiðieðlið er ríkt í köttum og þeir eiga það til að tæta smáfuglana í sig. Kettir eiga það líka til að veiða mýs og jafnvel rottur ef sá gállinn er á þeim. Mynd dagsins að þessu sinni sýnir einmitt fulla rútu af rottum á leiðinni til Akureyrar – sælar og glaðar yfir yfirvofandi kattabanni. Þessa skemmtilegu mynd teiknaði Pétur Snæland.