Mynd dagsins: Rotta með hálsól í Grafar­vogi – „Þetta eru huggu­legustu dýr“

Mynd dagsins birti Grafar­vogs­búi að nafni Reynir í Face­book-hópi íbúa þessa fjöl­menna hverfis. Myndin er af nokkuð stórri og pattara­legri rottu sem skartar rauðri hálsól. Það sem Reynir skrifar við myndina hefur komið mörgum til að brosa:

„Kæru ná­grannar.

Við fjöl­skyldan höfum fengið okkur nokkrar rottur sem gælu­dýr. Þær hafa allar verið vel heil­brigðis­skoðaðar og inni­halda ekki neina þekkta sjúk­dóma.

Til að forðast rugling höfum við sett á þær hálsól svo þær þekkist frá öðrum mögu­legum rottum sem eiga þó ekkert að vera á ferðinni.

Þar sem rottur eru nokkuð for­vitin dýr biðjum við fólk sem ekki vill fá rotturnar inn til sín um að hafa ekki meira en 3-5cm rifu á gluggunum hjá sér.

Þetta eru huggu­legustu dýr og vona ég að þið takið vel á móti þeim í hverfinu.“

Færslan hefur fengið góð við­brögð í hópnum og upp­skorið mörg „læk“, en eins og glöggir les­endur ættu ef­laust að vita er um grín að ræða. Myndin sem fylgir færslunni má sjá hér að neðan.