„Þessi ágæta rotta spókaði sig um á svölunum á annari hæð í ráðhúsinu núna áðan, ráðhúsrottan er til og er ekki flökkusaga,“ segir Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í borgarstjórn Reykjavíkur.
Valgerður birti meðfylgjandi myndir á Facebook-síðu sinni en á henni sést umrædd rotta og virkar hún nokkuð ánægð með lífið í miðborg Reykjavíkur.
Rottur hafa verið á Íslandi í margar aldir og hefur þeim trúlega aðeins fjölgað á síðustu árum. Í viðtali við RÚV árið 2017 sagði Steinar Smári Guðbergsson meindýraeyðir:
„Já mér finnst það hafa verið að aukast síðustu ár, svolítið mikið sko. Rottan lifir í lögnunum, hún fer út fyrir lagnirnar, hún getur verið að grafa sig meðfram lögnum einhvers staðar upp, inn í hús, upp á fimmtu hæð þannig að hún getur farið ansi víða helvítið af henni.“
Þessi ágæta rotta spókaði sig um á svölunum á annari hæð í ráðhúsinu núna áðan, ráðhúsrottan er til og er ekki flökkusaga🤣🤣
Posted by Valgerður Sigurðardóttir on Fimmtudagur, 3. september 2020