Sóley Tómasdóttir á mynd dagsins þar sem hún bendir á tvo tvífara. Fjölmenni kom saman í miðbænum á Selfossi í síðustu viku þar sem stytta af Agli Gr. Thorarensen, fyrsta kaupfélagsstjóra Kaupfélags Árnesinga var afhjúpuð.
Netverjar hafa hins vegar bent á það styttan er einstaklega lík Agli Ólafssyni tónlistarmanni.
Ásamt því er mynd af Emiliana Torrini sem var í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins en hún er samkvæmt Sóleyju einstaklega lík Röggu Gísla.
Dæmir hver fyrir sig.
Ragga Gísla og Egill Ólafs með tvífara í sömu vikunni: pic.twitter.com/X96P8kTolp
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) June 20, 2022
Einhver annar sem sér bara unga Röggu Gísla hér? pic.twitter.com/ljd0UeNnsG
— Maria Gunnarsdottir (@mariakgun) June 18, 2022