Útsýnispallurinn á Bolafjalli var formlega vígður í morgun og var ríkisstjórnin viðstödd vígsluna.
Ríkisstjórnin er stödd á Vestfjörðum en árlegur sumarfundur hennar fer fram á Ísafirði í dag. Ráðherrarnir nýttu því tækifærið og voru viðstaddir opnunina.
Mynd dagsins eða myndir dagsins koma frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra af opnunni en þar sést útsýnið ágætlega.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins á mynd - og önnur bakvið tjöldin.
— Bjarni Benediktsson (@Bjarni_Ben) September 1, 2022
Frábær dagur á Vestfjörðum og nýr útsýnispallur á Bolafjalli algjörlega stórbrotinn staður að heimsækja. pic.twitter.com/MjXCBodi2R