Mynd dagsins: Plaströr til sölu – „Skoðaru skipti á PS5?“

Það eru margir pirraðir á papparörunum sem fylgja nú svala- og kókómjólkurfernunum, var meðal annars gert stólpagrín að því í Áramótaskaupinu nú síðast.

Þetta þýðir að plaströr eru nú af skornum skammti og hefur John Joseph nokkur nýtt tækifærið og auglýst plaströrið sitt á sölu á Brask og brall á Facebook.

„Plast rör af fernu, óopnað. tilboð óskast,“ segir hann og birtir mynd af rörinu:

271206197_213493400986251_3838773916927180749_n.jpg

Margir hafa lýst yfir áhuga á þessu, flestir reyndar í gríni.

Guðmundur nokkur býður skipti á ónotuðu papparöri.

Ísak nokkur spyr: „Skoðaru skipti á PS5?“

Snorri býður betur: „Tekuru við trade á glæ nýjum Benz?“

Jakob býður peninga: „10.000 000.kr staðgreitt“