Mynd dagsins: Pínleg innsláttarvilla í nafni ráðherrans í kvöldfréttum

Einhverjir tóku eflaust eftir óheppilegri innsláttarvillu í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 í kvöld þar sem rætt var við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Þar var hún óvart nefnd „Þórdós" en ekki Þórdís.

Athygli var vakin á þessu á Facebook-hópi Fjölmiðlanörda í dag þar sem því var þá velt upp hvort nafn þetta yrði samþykkt af mannanafnanefnd.

„Hvernig fallbeygir maður orðið Þórdós? Ætli það sé holur hljómur í þeim beygingum?" spyr sá sem vekur athygli á óneitanlega skondinni innsláttarvillunni.

Hér má sjá skjáskot af útsendingunni.

Skjáskot