Mynd dagsins: Páll hitti Eddu og fann svo eldgamla mynd af þeim saman

Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður og forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, birti skemmtilega færslu á Facebook-síðu sinni í gær.

Þar birtir hann mynd af sér, Þór Freyssyni og gamalli samstarfskonu til fjölmargra ára, Eddu Andrésdóttur, en í færslunni segist hann hafa hitt þau til skrafs og ráðagerða í gær.

„Sama dag dúkkar upp í búslóðarflutningum neðri myndin - eftir áratugi í gleymskunnar dái. Tilviljun? Ég held ekki,“ segir Páll en hann og Edda störfuðu lengi saman á fréttastofu Stöðvar 2 og voru í raun andlit stöðvarinnar lengi vel.