Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason brá heldur betur í brún þegar hann leit út í garðinn sinn í morgun. Þar var ekki bara heljarinnar járngrind heldur við nánari skoðun sá hann að þar var rafskotta fast við grindina.
Hann birtir myndina inn í hópinn íbúar í Miðborg og segir að eigandi getur vitjað rafskottunnar.
„Einhverjar framtakssamir menn rifu upp þessa grind og hentu inn í garð hjá mér í Skólastræti, læst við grindina. Eiganda er velkomið að vitja hennar,“ skrifar Egill.