Þeir allra virkustu á Twitter virðast vera með augun alls staðar. Þannig tóku einhverjir eftir því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fækkaði í hópi þeirra sem hún fylgir á þessum vinsæla samfélagsmiðli.
Notandi sem kallar sig Nornadóttir birti skjáskot af Twitter-síðu Áslaugar sem sagt var tekið klukkan 22:33 í gærkvöldi. Þar má sjá að hún fylgdi 1.879 manns en þremur tímum síðar, klukkan 01:35, var fjöldi fylgjenda kominn niður í 1.872.
Áslaug Arna var gagnrýnd harðlega í gærkvöldi fyrir að „læka“ færslu fjölmiðlamannsins Loga Bergmanns þar sem hann lýsti sig saklausan af þeim ásökunum sem bornar hafa verið á hann síðustu daga. Áslaug fékk yfir sig holskeflu af gagnrýni á Twitter í gærkvöldi en tjáði sig þó ekki um málið.
Að minnsta kosti einn notandi greinir frá því að Áslaug hafi hætt að fylgja sér en það er Haukur Bragason. Við það tilefni sagði Haukur:
„Ég veit ekki hvoru ég er meira hissa á: Að Áslaug Arna hafi unfollowað mig nú rétt í þessu eða að hún hafi actually tollað sem follower í svona tvö ár. En fyrst þú ert greinilega að lesa Twitter núna væri ekki málið að svara fyrir sig?“
Ekki Áslaug Arna að unfollowa fólk meðan hún er radio silent? 😶👻 pic.twitter.com/YHStTTQ3o4
— Nornadóttir (@nornadottir) January 7, 2022
Ég veit ekki hvoru ég er meira hissa á: Að @aslaugarna hafi unfollowað mig nú rétt í þessu eða að hún hafi actually tollað sem follower í svona tvö ár. 😅
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) January 7, 2022
En fyrst þú ert greinilega að lesa Twitter núna væri ekki málið að svara fyrir sig? 🤔