„Þessi ætlar að fylgjast grannt með fundi velferðarnefndar, ekki vanþörf á,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Þar birtir hún jafnframt skemmtilega mynd sem hún tók fyrir fund velferðarnefndar Alþingis, en þar má sjá pattaralegan máv sem búinn var að koma sér vel fyrir við gluggann. Segja má að það sé engu líkara en að hann ætli að fylgjast vel með því sem fram fer.
Við færslu Helgu Völu eru komnar skemmtilegar athugasemdir þar sem fólk veltir fyrir sér á hvaða vegum mávurinn er.
„Þetta er örugglega útsendari einhverrar útlendrar leyniþjónustu.“
„Þetta er útsendari frá Soros...“
„Vargurinn er svangur og tekur allt frá smáfuglunum.“
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segir: „Einhver heimdallarstrákurinn úr Icelandair, nýbúinn að éta unga á Tjörninni frá flugfreyjuönd, heimtandi að þú skaffir honum egg.“
Þessi ætlar að fylgjast grannt með fundi velferðarnefndar, ekki vanþörf á 🙂
Posted by Helga Vala Helgadóttir on Fimmtudagur, 27. ágúst 2020