Mynd dagsins: „Ó­­­trú­­legt á­­stand í byrjun mars!“

Veður­vefurinn Blika em Einar Svein­björns­son veður­fræðingur heldur úti, greinir frá því í dag að allir vegir í vetrar­þjónustu eru grænir.

Þetta mun teljast með ó­trú­legt á þessum tíma árs.

„2. MARS OG ALLIR VEGIR GREIЭ­FÆRIR. Allir vegir í vetrar­­þjónustu eru grænir. Ó­­­trú­­legt á­­stand í byrjun mars! Um daginn var svipað, en hálka á nokkrum út­vegum. Nú eru þeir nánast allir einnig greið­­færir. Allt bendir til þess að lítil breyting verði á fram á laugar­­dag, reyndar nætur­frost víðar, en að víðast án nokkurrar úr­­komu. Heilsum síðan vetrar­veðráttu að nýju á sunnu­­dag,“ segir í færslu á Face­book- síðu Bliku.