Mynd dagsins: Ó­trúlegt á­stand á strætó­skýli í Esju­melum

Guð­jón Ey­feld Ólafs­son, bíl­stjóri hjá Hóp­bílum, á mynd dagsins í dag en hann birtir það ljós­mynd af strætó­skýli í Esju­melum.

Strætó hefur verið mikið í um­ræðunni upp á síð­kastið sér í lagi vegna þess að Strætó bs. hefur verið að blæða peningum og allt of fáir nýta sér strætó til að ferðast á milli staða.

Strætó­skýlið hefur farið ein­stak­lega illa út í snjó­komunni síðustu daga og lítur það út eins og það hafi verið viljandi mokað snjó inn í það. Sjón er sögu ríkari.

Fréttablaðið/Guðjón Eyfeld
Fréttablaðið/Guðjón Eyfeld