Lögreglan á Vestfjörðum birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni í morgun en í gær var lögreglu tilkynnt um að skemmdir hafi verið unnar á nokkrum leiðum í kirkjugarðinum í Bolungarvík.
Að sögn lögreglu virðist sem að minnsta kosti þremur legsteinum hafi verið velt um koll og einn liðiskross tekinn upp.
„Þetta er litið mjög alvarlegum augum og óskar lögreglan eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að hafa séð til grunsamlegra mannaferða í eða við kirkjugarðinn síðustu sólarhringana,“ segir lögregla.