Frekar mögnuð sjón blasti við þegar Helgi Sæmundur Guðmundsson opnaði útidyrahurðina á heimili sínu á Sauðárkróki á áttunda tímanum í morgun. Vetur konungur hefur minnt rækilega á sig undanfarinn sólarhring enda verið vonskuveður víða um land með snjókomu og hvassviðri.
Helgi birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni og gaf hann Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta hana. Eins og sést á myndinni komst Helgi hvorki lönd né strönd án þess að labba í gegnum mannhæðarháan snjóskafl sem var búinn að fylla upp í dyragættina.
Helgi segist hafa mokað frá hurðinni í gærkvöldi en í morgun blasti þessi sjón við. Helgi segir í samtali við Hringbraut að nú sé aðeins farið að létta til eftir snjókomu næturinnar.