Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, var til viðtals í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi. Þar ræddi hann erfiða stöðu Vinstri grænna, en fylgi flokksins hríðfellur í hverri könnunni á eftir annari.
Hann bendir á að einungis hluti viðtalsins hafi komist í sjónvarpið, og þá virðist hann ekki nægilega sáttur með frétt um viðtalið sem birtist á vef RÚV, en hann segist ekki spá því að fylgi VG muni lækka enn meira í könnunum, þó það sé vissulega mögulegt, heldur telji hann að flokkurinn muni heldur lækka í næstu kosningum.
Þetta kemur fram í færslu Ólafs sem birtist á Facebook-síðu hans í dag, en í commentakerfinu fyrir neðan hana hefur skapast mikil umræða.
„Mér þótti meðferð Rúv á viðtalinu alveg óvenju mikið út í hött miðað við þó viðvarandi illvilja og heimsku fréttamanna stöðvarinnar.“ skrifaði til að mynda einn. Ólafur svaraði þó:
„Mín reynsla af fréttafólki Ríkisútvarps er að það sé upp til hópa bæði greint og velviljað. En auðvitað er alltaf kúnst að klippa ítarleg viðtöl í stutta frétt. Þess vegna er til fyrirmyndar að birta lengri útgáfu á vefnum. Þá geta áhugasamir fengið meira að heyra - og sjá hvernig fréttin hefur verið klippt“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, kom þá með ansi skemmtilegt innlegg í umræðuna. Hann fjallaði um klæðaburð Ólafs, og fannst hann vera að koma uppáhalds íþróttafélaginu sínu á framfæri í gegn um hann, en prófessorinn var klæddur í polo-bol merktan FH.
„Er það meðvitað hjá professor emerítus að nota kosningafræðileg greiningarviðtöl til að koma með lævíslegum hætti hafnfirsku íþróttafélagi á framfæri gegnum klæðaburð?“