Mynd dagsins: „Orð eru óþörf á þessum sorgardegi“

Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður birti mynd á Facebook-síðu sinni í morgunsárið í tilefni af innrás Rússa í Úkraínu.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti að hernaðaraðgerðir væru hafnar gegn Úkraínu og hafa sprengingar heyrst í mörgum borgum landsins nú í morgun.

Illugi segir réttilega að þetta sé sorgardagur og birtir af því tilefni skopmynd af Vladimír Pútín Rússlandsforseta í fangi Adolfs Hitlers.

Petro Poroshenko, fyrrverandi forseti Úkraínu, sagði við blaðamenn fyrir utan úkraínska þingið í morgun að Pútín væri ekkert annað en Hitler dagsins í dag. Poroshenko var forseti landsins á árunum 2014 til 2019.