Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og fyrrverandi ritstjóri, er búinn að flagga við heimili sitt í Gerðunum í Reykjavík.
Ólafur er búinn að draga úkraínska fánann að hún til stuðnings frelsisbaráttu Úkraínu. Hann hvetur fólk til að sýna Úkraínumönnum stuðning.
„Væri ekki þjóðráð að sem allra flestir sem eiga fánastöng fengju sér úkraínskan fána til að sýna samstöðu með Úkraínumönnum? Ég fékk fánann hjá Fánasmiðjunni á Ísafirði. Hann blaktir glæsilega í suðaustangolunni,“ segir hann í færslu á Facebook-síðu sinni hvar hann birtir myndband af fánanum í rokinu á Íslandi.