Þessi mynd var tekin í miðborg Reykjavíkur um hádegisbilið í dag og sýnir bifreið sem staðið hefur í stæði um nokkra hríð. Ökumaðurinn eða eigandi bifreiðarinnar virðist hins vegar hafa gleymt að borga í stöðumæli og það getur verið dýrt.
Á myndinni má sjá minnst fimm sektarmiða á framrúðunni, en sektin fyrir að greiða ekki í stöðumæli er 4.500 krónur. Ef greitt er innan þriggja virkra daga fæst staðgreiðsluafsláttur og lækkar sektin þá í 3.400 krónur.
Sé gjaldið aftur á móti ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það úr 4.500 krónum í 6.750 krónur og gjöld sem eru ógreidd 28 dögum eftir álagningu hækka í 9.000 krónur.
Eigandi bifreiðarinnar getur því átt von á að þurfa að borga nokkuð marga þúsundkalla, ella eiga yfir höfði sér frekari innheimtuaðgerðir.