Mynd dagsins: „Ó­heppi­legasta bíl­númer landsins“

Mynd dagsins hefur farið sem eldur í sinu um sam­skipta­miðla og ekki af á­stæðu­lausu. Bif­reiðin sem er af Honda tegund og í eigu fram­leiðslu­stjóra og þjóns á Austur-Indía­fjelaginu ber nokkuð sér­stakt bíl­númer. Á númera­plötu bílsins stendur:

KOV-19.

Nafnið er kunnug­legt enda um sama nafn að ræða og kóróna-veiran sem nú herjar á heims­byggðina. Vísir náði tali af eig­anda bílsins sem upp­lýsti að um til­viljun væri að ræða. Hann hafði keypt bílinn notaðan.