Kona nokkur greindi frá skemmtilegum misskliningi sem hún lenti í er hún var að skoða vefmyndavélar af Dalvík.
Himinnhár skýstrókur virtist nálgast bæjarfélagið.
„Var að skoða vefmyndavélar áðan og bara bíddu ha hvað er að gerast hér. Leit út eins og skýstrókur,“ skrifar konan á Twitter.
Hún bendir síðan á að ekki var um skýstrók að ræða, heldur var vatnsdropi að leka niður myndavélina, sem skapaði þessi óhugnanlegu áhrif.
Það er bara eitthvað að leka niður myndavélina 😅 pic.twitter.com/g788maXbUh
— 𝚁 𝙰 𝙶 𝙶 𝙰 🦋 (@raggaj89) February 20, 2023